STUÐLAFOSS eyrnalokkar - Silfrað berg og gylltur stuttur Foss

kr. 38.850

Loading...

Lýsing

Ný eldheit hönnun eftir Silfu! Hugmyndin kemur frá fallega Stuðlaberginu okkar og íslensku fossunum.

Lokkarnir eru fjölnota þ.e. hægt er að bera Stuðlabergið sér og bæta síðum fossunum við, þegar við á.

(Dag og kvöld útlit)

Innihald: Sterling silfur 925

Stærð á lokkum: 1,5 cm x

Lengd á foss: 3 cm

Í boði er rhodium eða 14k húð.

Einnig er hægt að velja staka Fossa. Fossarnir nýtast við hvaða eyrnalokka sem er sem hafa pinna og þá settir á bak við eyrnasnepilinn.

 

Umhirða skartgripa – S925 silfur með rhodium- eða gylltri húð
Skartgripir úr 925 sterling silfri með rhodium- eða gylltri húð þurfa á mildri umhirðu að halda til að varðveita fegurð sína, gljáa og áferð sem lengst.
Með réttri meðhöndlun getur þú lengt líftíma skartgripanna og notið þeirra um ókomin ár.
Góð ráð um umhirðu:
– Forðastu vatn og raka: Taktu skartgripina af áður en þú ferð í sturtu, bað, sund eða notar gufubað.
– Forðastu snyrtivörur: Ilmvötn, krem, hársprey og önnur snyrtiefni geta haft áhrif á húðina og gljáa skartgripanna. Settu skartið á þig eftir að snyrtivörur hafa þornað.
– Geymdu skartið rétt: Geymdu skartgripina á þurrum stað, helst í skartgripaöskju eða mjúkum poka, og forðastu að þeir liggi saman og rispist.
– Hreinsaðu varlega: Notaðu mjúkan, þurran klút til að strjúka létt yfir skartgripina eftir notkun. Forðastu silfurhreinsiefni, fægilög og sterk hreinsiefni þar sem þau geta skemmt yfirborðshúðina.
– Farðu vel með húðina: Rhodium- og gylling eru yfirborðshúðir sem geta slitnað með tímanum. Slit fer meðal annars eftir notkun, núningi og því hvernig skartgripirnir eru meðhöndlaðir.
Smá umhyggja – lengri líftími
Skartgripir eru gerðir til að njóta sín. Með góðri umhirðu getur þú hjálpað til við að varðveita fallegt útlit þeirra og gljáa sem lengst.
Takk fyrir að velja SILFA.

 

Frekari upplýsingar

Litur

Silfur, Gull

Umsagnir

Það eru engar umsagnir enn.

Ritaðu fyrstu umsögnina um “STUÐLAFOSS eyrnalokkar – Silfrað berg og gylltur stuttur Foss”

Netfang þitt verður ekki birt. Nauðsynlegir reitir eru merktir *